Lög Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð.

1.gr.

Félagið heitir Félag fagfóks í fjölskyldumeðferð, skammstafað FFF. Lögheimili og varnarþing er í Reykjavík.

2.gr.

a) Félagar í FFF skulu hafa háskólamenntun eða aðra sambærilega menntun og sérnám í fjölskyldumeðferð. Einnig skulu þeir starfa við eða hafa starfað við fjölskyldumeðferð.
a) b) Nemendafélagar í FFF skulu stunda nám í fjölskyldumeðferð

3.gr.

Félagar í FFF skulu fylgja siðareglum FFF en að auki fagfélaga sinna.

4.gr.

Tilgangur félagasins er að vera sameiginlegur vettvangur þeirra sem stunda eða hafa stundað fjölskyldumeðferð.
Félagið skal m.a.:
• vinna að skilgreiningu á starfssviði fagfólks í fjölskyldumeðferð.
• stuðla að því, að komið verði á viðurkennt nám í fjölskyldumeðferð hér á landi í samræmi við sambærilegt nám í Evrópu.
• stuðla að því að fá lögverndun á starf fjölskyldufræðinga hér á landi.
• vera vettvangur endurmenntunar, fræðslu og upplýsinga um fjölskyldumeðferð fyrir félaga og aðra sem áhuga hafa á viðfangsefninu
• mynda tengsl við sambærileg félög í öðrum löndum.

5.gr.

Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi félagsins til tveggja ára í senn. Stjórnina skipa fimm félagsmenn og tveir til vara, þeir skipta með sér verkum. Varaformaður skal kosinn annað hvert ár og sitji í tvö ár en þá tekur hann við formennsku í tvö ár. Aðrir í stjórn eru ritari, gjaldkeri meðstjórnandi og tveir varamenn. Formaður eða varaformaður skulu að jafnaði sjá um erlend samskipti en skipa ásamt aðalfundi fulltrúa til að sinna ákveðnum erlendum tengslum.

6.gr.

Aðalfundur skal haldinn í síðasta lagi í október ár hvert, þar sem venjuleg aðalfundarstörf eru afgreidd. Boða skal til aðalfundar bréflega eða með netpósti með tveggja vikna fyrirvara, þar sem auglýst dagskrá kemur fram. Reikningsár félagsins er 1. október til 30. september. Löggiltur endurskoðandi fer yfir bókhald félagsins.

7.gr.

Nefndir innan FFF skulu gera grein fyrir störfum sínum á aðalfundi félagsins.

8.gr.

Stjórn félagsins ákveður félagsgjöld félaga FFF sem skulu borin undir aðalfund ár hvert. Ráðstefnur, námskeið og annað á vegum félagsins skulu kosta utanfélagsmenn og þá félaga sem ekki hafa greitt félagsgjöld hærra verð.
Félagsmenn sem ekki hafa greitt félagsgjöld hafa ekki kosningarétt á aðalfundi FFF. Félagsmenn sem ekki hafa greitt félagsgjöld í tvö ár samfleytt falla af félagaskrá að undangenginni tilkynningu.

9.gr.

Lög þessi öðlast gildi á aðalfundi félagsins sem boðað hefur verið til með lögmætum hætti. Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn félagsins minnst tíu dögum fyrir aðalfund og skulu þær kynntar félagsmönnum bréflega eða með netpósti verði því viðkomið. Tillögurnar eru síðan afgreiddar á aðalfundi.

10.gr.

Verði uppi óskir um að leggja FFF niður, þarf 2/3 atkvæðisbærra félagsmamma á tveimur aðalfundum, og á þeim fundum skal taka ákvörðun um ráðstöfun á eigum félagsins.

-------------

Lög FFF eftir breytingar á lögum þess með samþykki aðalfundar miðvikudaginn 19. apríl 2005.

 

Siðareglur Félags fagfólks í fjölskyldumeðferð

1.gr.

Grundvöllur fjölskyldumeðferðar er virðing fyrir manngildi og sérstöðu hvers einstaklings og hverrar fjölskyldu og að standa vörð um mannréttindi þeirra.

2.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð kemur fram af heiðarleika og virðingu og leitast við að skapa gagnkvæmt traust.

3.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð sýnir ábyrgð í starfi og skuldbindur sig til að vinna sem best í þágu þeirra sem leita meðferðar og standa vörð um velferð þeirra.

4.gr.

Markmið fjölskyldumeðferðar er að vinna að betri líðan og velferð hvers einstaklings og fjölskyldu, stuðla að betri tjáskiptum, styrkja sjálfstæði þeirra og efla færni þeirra til að vinna að lausn eigin mála.

5. gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð skal gæta trúnaðar um öll þau mál einstaklinga og fjölskyldna sem berast til þeirra. Undantekning frá þessu er ef notandi meðferðar er sjálfum sér og öðrum hættulegur. Skal þá vísa málinu til réttra aðila.

6.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð veitir aðeins þá meðferð sem það hefur fullgilda þekkingu og reynslu til að vinna. Það ber ábyrgð á eigin hæfni og því að fylgjast með nýjungum í fjölskyldumeðferð, halda við þekkingu sinni og færni í þágu þeirra einstaklinga og fjölskyldna, sem leita meðferðar.

7.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð skal ekki nýta tengsl við þá sem leita meðferðar sjálfu sér til framdráttar og gæta þess að gera ekki notendur meðferðarinnar háða sér á nokkurn hátt.

8.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð skal ekki stofna til kynferðislegs sambands við þá sem leita meðferðar.

9.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð skal ekki vera undir áhrifum áfengis eða annarra efna sem slæva dómgreind þess og athygli.

10.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð gerir ekkert það sem getur rýrt álit almennings á fjölskyldumeðferð en vinnur að því að skapa greininni traust.

11.gr.

Fagfólk í fjölskyldumeðferð vinnur að góðum og traustum fagtengslum sín á milli og virðir hæfni og skyldur hvers annars.

12.gr.

Félagsmenn í FFF eru í góðri samvinnu og tengslum við fagaðila í öðrum fagfélögum, sem vinna að meðferð einstaklinga og fjölskyldna. h5>

13.gr.

Siðanefnd skipa þrír félagsmenn FFF. Nefndin endurskoðar siðareglur og tekur fyrir ábendingar um störf fagfólks í fjölskyldumeðferð.

14.gr.

Ef félagi í FFF gerist brotlegur í starfi þá er hægt að vísa máli hans til siðanefndar FFF sem skilar skriflegu áliti til stjórnar. Stjórn FFF metur þá hvort aðgerða er þörf.

15.gr.

Siðanefnd gætir trúnaðar um þau mál, sem til hennar berast.

-------------

Siðareglur FFF voru samþykktar á aðalfundi félagsins miðvikudaginn 19. apríl 2005.

 


Senda lykilorð:

 

 
     
Félag fagfólks í fjölskyldumeðferð, Sólvallagata 10, 101 Reykjavík, Sími: 5525881, E-mail: FFF@fjolskylda.org